Horfi á Skessuhorniđ út um gluggann minn.Sigurborg Ósk Haraldsdóttir

Núna er ég loksins flutt á Hvanneyrina. Langþráður tími hefur runnið upp og það er yndislegt að vera komin aftur í þetta krummaskuð í miðjum Borgarfirðinum. Hér er búið að vera rok og rigning alla dagana síðan ég kom, alveg eins og það á að vera.
 
Annars byrjar skólinn bara á morgun (fimmtudag) og svo er skólagrill um kvöldið, nóg um að vera og ég er bara ótrúlega spennt að kynnast nýju fólki, byrja að læra og svo getur jafnvel verið að ég geri B.s. verkefnið mitt fyrir áramót.
 
Svo það eru spennandi tímar framundan, eins er kannski best að segja frá því að við Björn Hákon höfum ákveðið að opna myndasíðu fyrir áhugasama til að fylgjast með gangi mála, 123.is/b&s
 
Ég set inn link hérna í hægra hornið á síðunni Hlæjandi 
Svo veit ég reyndar ekki hversu dugleg ég verð að halda áfram að blogga, sérstaklega við ætlum að halda úti annarri bloggsíðu.
 
Kemur allt í ljós, það getur vel verið að ég verði svo kúguð af karlaveldinu að þetta verður eini staðurinn þar sem ég fæ að tjá skoðanir mínar.
En núna ætla ég að skella mér í sund í Borgarnesi, "sólskinskveðjur" frá Hvanneyri!
 
Spobba

Á leiđinni heim í heiđardalinn!Sigurborg Ósk Haraldsdóttir

Ég er á leiðinni suður vinir góðir. Nánar tiltekið á föstudaginn 22. ágúst og flyt beina leið á Hvanneyrina.
Eins og mér finnst Húsavík yndisleg og það er búið að vera ótrúlega gaman að vera hérna þá eðlilega saknar maður fjölskyldunnar og vina sinna. Ég tala ekki um þegar maður er búinn að vera í útlöndum í hálft ár og fer svo beinustu leið hinum megin á landið.
 
Ég hef reyndar ekki ennþá afrekað að fara á Typpasafnið eða the Phallus Museum og hef ekki gengið á Húsavíkurfjall. Þó hef ég afrekað flest annað, farið á Hvalasafnið, gengið upp að Botnsvatni, farið í Hvalaskoðun og baðað mig í Ostakarinu eina sanna. Ég hef einnig afrekað að slá Kirkjugarðinn á Húsavík 4 sinnum og ýmislegt annað bráðnauðsynlegt. Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma hellulögninni í Villasneiðingnum svokallaða. Hann er við hliðina á Typpasafninu og er stórglæsileg hellulögn, sem er frá A til Ö sköpunarverk Björns Hákons. Hann hannaði alla hellulögnina og sá um alla framkvæmd og þið bara verðið að kíkja á þetta þegar þið farið framhjá typpasafninu. Sem er án efa í næstu viku bara!
 
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/08/15/unnu_i_villasneidingnum_i_19_stiga_hita/
 
Hérna er svo frétt frá mbl.is um vinnusamafólkið í hellulögninni á Húsavík.

En núna er stefnan sett heim, ég er byrjuð að pakka og er í huganum löngu byrjuð í skólanumHlæjandi.
Svo koma nú eflaust fleiri blogg þegar skólinn er byrjaður, þá er maður í tölvunni allan daginn og segir stanslaust fréttir frá líðandi stundu. Ég bið ykkur vel að lifa og vonast til að sjá sem flesta á næstunni!
 
Heimsins bestu kveðjur frá Húsavík.


Ađalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Dr.Phils Tip of the day

Ţađ er enginn sem hafnar ţér nema ţú hafnir ţér sjálfur.

ER ÉG KEM HEIM Í SKRÝPLALAND

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Hver er ţessi gáfađa kona?

  • Nafn: Sigurborg Ósk Haraldsdóttir
  • Netfang: sigurborg_osk@hotmail.com
  • Atvinna: Í skiptinámi viđ Köbenhavns Universitet
  • Hjúskaparstađa: Einhlaupari
  • Um mig: I´m schizophrenic and so am I
  • Annađ: Mess with her you mess with me!

NETIĐ ER GAGNVIRKUR MIĐILL

Svo endilega tjáđu ţig á síđunni minni!

Könnun

Hvar á Sigurborg ađ vinna í sumar?