Já ég veit, það er rétt hjá þér elskan. Langar bara að hafa alla á Hvanneyri í vetur:(
En það er víst ekki hægt.
Það er hún Snædís vinkona sem ákvað að skella sér til Slóveníu... held það sé rétt hjá Króatíu og fleiri furðulegum löndum.
En hvernig er það, á ekki að stofna bloggsíðu? Svo maður fái nú að fylgjast með. Eins finnst mér líka sanngjarnt að ég fái að kommenta á þín blogg :D
ÆlubloggSigurborg Ósk Haraldsdóttir
Eflaust er kominn tími á annað blogg.Það gefst hreinlega ekki mikill tími til svoleiðis hluta svona um mitt sumar þegar úti er 26 stiga hiti og sól. Það er ekkert grín að vinna í þessum hita við að kantskera eins og vitleysingur. Ég er reyndar á því að þessi hiti fari bara illa með mann, steiki í fólki heilann og þess vegna sé óheilbrigt að vinna í svona miklum hitum. Því miður er yfirmaður minn ekki á sama skapi.
En öllu gamni slepptu þá er ég ennþá stödd á norðurhjara veraldar og líður bara nokkuð vel. Við erum komin með okkar eigin íbúð þar sem klósettið inniheldur bæði sturtu og ljós!
Ég fór í Skagafjörðinn um verslunarmannahelgina, fékk ekki að fara með í River rafting..... en fékk í staðinn að fara á hestbak sem var í raun miklu skemmtilegra. Bara verst hvað mig langaði til að kaupa hestinn sem ég fékk lánaðann. En maður getur ekki fengið allt, það sagði mamma mín allavega við mig þegar ég var lítil.
Eina ástæðan fyrir því að ég aulast til þess að setja inn blogg er sú að ég er með svo mikla ógleði að ég get ekki mætt til vinnu, það þykir ekki fínt að æla í runnana í kirkjugarðinum og þess vegna þarf ég að vera heima í dag. Ekki það skemmtilegasta sem ég hef gert um ævina.
Svo byrjar skólinn 25 ágúst og mér hlakkar gríðarlega til. Reyndar eru margir af mínum bestu vinum hættir í skólanum útskrifaðir eða á leiðinni til útlanda, Noregur, Ástrálía og Slóvevnía eru hátt á vinsældarlistanum í ár. Ég skil ekki afhverju þetta fólk getur ekki bara haldið sig heima. Ekkert vit í að fara út fyrir landsteinana.
Ég verð allavega á Hvanneyri í vetur þegar þið ætlið öll að koma heimsækja mig, kannski að ég lumi á pönnsum og kaffi.
Kveðjur frá Harðmæltri Húsavíkur-gellu.
Athugasemdir
2
Spobba skrifar:
07. ágúst 2008 klukkan 17:24
3
Lena skrifar:
Hæhæ, ég hugsaði mikið til þín um helgina þegar ég keyrði í gegnum Húsavík, en ég sá enga Spobbu á 4 fótum inní runna, ótrúlegt en satt. Það verður fínt að byrja aftur í skólanum, hlakka til að sjá þig:)
07. ágúst 2008 klukkan 21:11
4
Sigga systir skrifar:
Jú ætli ég reyni ekki að stofna bloggsíðu... reyni jafnvel að skrifa eitthvað inn á hana líka þó mér finnist leiðinlegt að skrifa sögur...
08. ágúst 2008 klukkan 09:14
5
Aldís skrifar:
heyrðu ég bý nú bara ekkert svo langt frá þér - bara 2 tíma keyrsla - eða minna jafnvel!
og til hamingju með bumbubúann.
hafðu það gott sæta
later
og til hamingju með bumbubúann.
hafðu það gott sæta
later
11. ágúst 2008 klukkan 11:23
6
Sigga systir skrifar:
Ég veit... lætur krakkann í skiptum fyrir hrossið... góða skipti að mínu mati...
11. ágúst 2008 klukkan 18:01
7
silja skrifar:
mikið hlakka ég til að fá þig til mín .... og hana nöfnu mína sól..!!
13. ágúst 2008 klukkan 17:50

En hver er að fara til Slóveníu??? Nú er ég forvitin...