Horfi á Skessuhorniđ út um gluggann minn.Sigurborg Ósk Haraldsdóttir

Núna er ég loksins flutt á Hvanneyrina. Langþráður tími hefur runnið upp og það er yndislegt að vera komin aftur í þetta krummaskuð í miðjum Borgarfirðinum. Hér er búið að vera rok og rigning alla dagana síðan ég kom, alveg eins og það á að vera.
 
Annars byrjar skólinn bara á morgun (fimmtudag) og svo er skólagrill um kvöldið, nóg um að vera og ég er bara ótrúlega spennt að kynnast nýju fólki, byrja að læra og svo getur jafnvel verið að ég geri B.s. verkefnið mitt fyrir áramót.
 
Svo það eru spennandi tímar framundan, eins er kannski best að segja frá því að við Björn Hákon höfum ákveðið að opna myndasíðu fyrir áhugasama til að fylgjast með gangi mála, 123.is/b&s
 
Ég set inn link hérna í hægra hornið á síðunni Hlæjandi 
Svo veit ég reyndar ekki hversu dugleg ég verð að halda áfram að blogga, sérstaklega við ætlum að halda úti annarri bloggsíðu.
 
Kemur allt í ljós, það getur vel verið að ég verði svo kúguð af karlaveldinu að þetta verður eini staðurinn þar sem ég fæ að tjá skoðanir mínar.
En núna ætla ég að skella mér í sund í Borgarnesi, "sólskinskveðjur" frá Hvanneyri!
 
Spobba

Á leiđinni heim í heiđardalinn!Sigurborg Ósk Haraldsdóttir

Ég er á leiðinni suður vinir góðir. Nánar tiltekið á föstudaginn 22. ágúst og flyt beina leið á Hvanneyrina.
Eins og mér finnst Húsavík yndisleg og það er búið að vera ótrúlega gaman að vera hérna þá eðlilega saknar maður fjölskyldunnar og vina sinna. Ég tala ekki um þegar maður er búinn að vera í útlöndum í hálft ár og fer svo beinustu leið hinum megin á landið.
 
Ég hef reyndar ekki ennþá afrekað að fara á Typpasafnið eða the Phallus Museum og hef ekki gengið á Húsavíkurfjall. Þó hef ég afrekað flest annað, farið á Hvalasafnið, gengið upp að Botnsvatni, farið í Hvalaskoðun og baðað mig í Ostakarinu eina sanna. Ég hef einnig afrekað að slá Kirkjugarðinn á Húsavík 4 sinnum og ýmislegt annað bráðnauðsynlegt. Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma hellulögninni í Villasneiðingnum svokallaða. Hann er við hliðina á Typpasafninu og er stórglæsileg hellulögn, sem er frá A til Ö sköpunarverk Björns Hákons. Hann hannaði alla hellulögnina og sá um alla framkvæmd og þið bara verðið að kíkja á þetta þegar þið farið framhjá typpasafninu. Sem er án efa í næstu viku bara!
 
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/08/15/unnu_i_villasneidingnum_i_19_stiga_hita/
 
Hérna er svo frétt frá mbl.is um vinnusamafólkið í hellulögninni á Húsavík.

En núna er stefnan sett heim, ég er byrjuð að pakka og er í huganum löngu byrjuð í skólanumHlæjandi.
Svo koma nú eflaust fleiri blogg þegar skólinn er byrjaður, þá er maður í tölvunni allan daginn og segir stanslaust fréttir frá líðandi stundu. Ég bið ykkur vel að lifa og vonast til að sjá sem flesta á næstunni!
 
Heimsins bestu kveðjur frá Húsavík.


ĆlubloggSigurborg Ósk Haraldsdóttir

Eflaust er kominn tími á annað blogg.
Það gefst hreinlega ekki mikill tími til svoleiðis hluta svona um mitt sumar þegar úti er 26 stiga hiti og sól. Það er ekkert grín að vinna í þessum hita við að kantskera eins og vitleysingur. Ég er reyndar á því að þessi hiti fari bara illa með mann, steiki í fólki heilann og þess vegna sé óheilbrigt að vinna í svona miklum hitum. Því miður er yfirmaður minn ekki á sama skapi.

En öllu gamni slepptu þá er ég ennþá stödd á norðurhjara veraldar og líður bara nokkuð vel. Við erum komin með okkar eigin íbúð þar sem klósettið inniheldur bæði sturtu og ljós!

Ég fór í Skagafjörðinn um verslunarmannahelgina, fékk ekki að fara með í River rafting..... en fékk í staðinn að fara á hestbak sem var í raun miklu skemmtilegra. Bara verst hvað mig langaði til að kaupa hestinn sem ég fékk lánaðann. En maður getur ekki fengið allt, það sagði mamma mín allavega við mig þegar ég var lítil.

Eina ástæðan fyrir því að ég aulast til þess að setja inn blogg er sú að ég er með svo mikla ógleði að ég get ekki mætt til vinnu, það þykir ekki fínt að æla í runnana í kirkjugarðinum og þess vegna þarf ég að vera heima í dag. Ekki það skemmtilegasta sem ég hef gert um ævina.

Svo byrjar skólinn 25 ágúst og mér hlakkar gríðarlega til. Reyndar eru margir af mínum bestu vinum hættir í skólanum útskrifaðir eða á leiðinni til útlanda, Noregur, Ástrálía og Slóvevnía eru hátt á vinsældarlistanum í ár. Ég skil ekki afhverju þetta fólk getur ekki bara haldið sig heima. Ekkert vit í að fara út fyrir landsteinana.

Ég  verð allavega á Hvanneyri í vetur þegar þið ætlið öll að koma heimsækja mig, kannski að ég lumi á pönnsum og kaffi.

Kveðjur frá Harðmæltri Húsavíkur-gellu. 

Húsavík var ţađ heillin mín.Sigurborg Ósk Haraldsdóttir

Sælt veri fólkið.
Ég taldi það vera rétt að láta vita af því að ég er komin með vinnu, því miður ekki hjá Karen Millen.
Ég var á leiðinni í helgarferð til Húsavíkur þegar ég fékk skilaboð um það á miðri leið að ég væri með komin með vinnu á Húsavík og var þess vegna ekkert á leiðinni heim aftur!

Já skjótt skipast veður í lofti, maður náði varla að segja bless við nokkurn mann og hvað þá að segja fólki fréttirnar. En ég er sem sagt að vinna í fyrirtæki sem heitir Garðvík með honum Bjössa mínum og þar fæ ég að vinna úti í görðum og öðru slíku ásamt því að fá að teikna upp svæði sem á að helluleggja og ýmislegt fleira. Líst ljómandi vel á þessa vinnu og er bara merkilega ánægð með lífið og tilveruna þrátt fyrir að búa á hinum endanum á landinu.

Þetta er mun betri staður en ég bjóst við og held að sumarið verði hið skemmtilegasta. Ég hitti fjölskylduna mína og vini fyrir sunnan ekki jafn mikið en ég á líka vini á þessu horni landsins og fjölskyldu hér. Maður getur ekki fengið allt sem maður vill, eins og mamma mín hefur réttilega sagt mér í 23 ár. Ég fæ líka helling af öðru í staðinnHlæjandi.

En núna ætla ég að drífa mig í Húsavíkursundlaug, hérna í húsinu sem við búum í er engin sturtu svo maður verður að þrífa sig einhversstaðar annarsstaðar. Eins er líka gaman að segja frá því að á litla klósttinu okkar undir tröppunum er ekkert ljós og þess vegna fara allir íbúarnir hér á klósettið með galopna hurð, burtséð frá því hvort menn þurfa að gera númer eitt eða tvö.........  og ég bý með fjórum fótboltastrákum!


Er farin í sund og vona að þið njótið sumarsins jafn vel og ég!



P.S. sá eftir að hafa lesið færsluna yfir að það væri kannski best að minnast á það að ég fer ekki á klósettið með galopna hurð, sætti mig bara við myrkrið.

Já ţađ er pínu kaldara hér.Sigurborg Ósk Haraldsdóttir

Ég er lent á Ísalandsins fold. Lenti rétt fyrir miðnætti á fimmtudaginn og að sjálfsögðu var það fyrsta sem ég gerði var að kaupa mér Kókómjólk á flugvellinum. Þegar ég vaknaði síðan næsta morgun rölti ég útí búð að kaupa mér Coco puffs og mjólk. Nammi namm!
Þetta er búinn að vera dásamlegur og yndislegur tími að koma heim, hver einasta mínóta. Ég hafði líka miklar fréttir að segja þegar ég kom heim og þið sem vitið ekki fréttirnar nú þegar verðið bara hitta mig til þess að fá að vita þærHlæjandi.

Gaman er að segja frá úrslitum könnunarinnar þar sem "Hrósa henni fyrir aukakílóin" hlaut án vafa fyrsta sætið og ætla ég að leyfa mér að giska á að karlkyn þjóðarinnar eigi sök á því. Í öðru sæti var svo "knúsa í döðlur", "gefa henni Coco puffs" og svo "segja eitthvað gáfulegt á dönsku" en því miður get ég ekki orðið við þeirri fyrirspurn þar sem hálfsárs dvöl í Danmörku kennir manni ekki endilega dönsku!

Í þriðja sæti var svo "segja henni hvað ég elska hana mikið...." og tel ég þar vera vinkonur mínar á ferð sem einfaldlega elska mann sama hvað á gengur. Ég elska ykkur líka! Reyndar var í sama sæti "forðast hana eins og heitann eldinn" en ég skil nú ekki hvað þær manneskjur eru að lesa bloggið mitt.

En núna sit ég á ljósabekkjastofunni dásamlegu að vinna, og úti er 19 stiga hiti og glampandi sólskin. Ég hreinlega skil ekki hverjir fara í ljós á þessum tíma árs en ætla svo sem ekkert að spá í því. Ég fæ laun fyrir þetta.
Ég er reyndar í smá vandræðum með vinnu. Vinnan sem mér hafði verið lofuð stóðst síðan ekki þegar á hólminn var komið, svo ég er atvinnulaust þessa stundina, er að sækja um allar vinnur sem ég finn svo ef þið vitið um einhverja þá endilega látið mig vita. Sá reyndar að þeir voru að auglýsa eftir fólki í Karen Millen.... sem væri mitt draumastarf!

En núna þarf að að fara að einbeita mér að vinnunni sem ég er í núna, tveir viðskiptavinir búnir að koma í dag. Gríðarlegt vinnuálag. 

Bless í bili og njótið þess að vera til.

Litiđ yfir farin veg.Sigurborg Ósk Haraldsdóttir

Já sæll!
Þarna flaug einmitt í burtu hugsunin sem ég ætlaði að skrifa. Þoli ekki þegar þetta gerist. Jæja, ég segi ykkur þá bara frá líðandi stundu í staðinn.

Sit og er að borða Kellogs Special K fyrir framan tölvuna mína því það er hreinlega það eina sem ég á að borða þessa stundina. Ég og litli homminn minn sem bjó með mér vorum að enda við að þrífa íbúðina. Hún er líka miklu hreinni núna heldur en þegar ég flutti inní hana. Á morgun mun ég svo flytja út úr íbúðinni og inn til Guðnýju bekkjarsystur minnar. Hún var svo yndisleg að skjóta yfir mig húsaskjóli í nokkra daga. Svo er eitt próf á mánudaginn og annað á fimmtudaginn. Síðan er það bara home sweet home um kvöldið!

Þegar ég lít til baka get ég ekki sagt annað en að ég sé bara pínu stolt af sjálfri mér. Þetta er ekkert grín að flytja svona í annað land, stunda háskóla á öðru tungumáli og hreinlega þurfa að standa á eigin fótum. Ég var orðin hrædd um að ég væri með hálfgerða brauðfætur áður en ég fór hingað. Hafði eiginlega aldrei flutt að heiman, var alltaf undir verndarvæng mömmu og pabba. Tíminn hérna úti hefur líka ekki verið neinn dans á rósum, upplifði ótrúlegustu hremmingar og hélt oftar en einu sinni að ég myndi bugast, því það er ansi margt sem maður skrifar ekki í bloggið sitt. Stundum hefur þetta verið svo svo svo SVO erfitt. En ég stóðst þetta allt. Eins og kötturinn sem kemur alltaf niður á fótunum. Þið megið samt ekki halda að ég hafi ekki skemmt mér vel hérna úti, því það hef ég svo sannarlega gert. Kynnst helling af fólki og upplifað yndislegustu ævintýri. Ég hef hreinlega gengið í gegnum allt hérna úti, gegnum allan skalann.

Svo að heim kemur súpersterk stelpa sem getur gert allt sem hún vill, flogið til tunglsins, kastað eldhnöttum og hlaupið í gegnum veggi!

Þetta verður reyndar í fyrsta skipti sem ég missi af 17 júní í Reykjavík, en það verður bara að hafa það. Íslendingar hérna í Danmörku halda líka uppá þjóðhátíðardaginn, bara á ströndinni! Það finnst mér nokkuð svalt.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, veit ekkert hvenær ég hef tíma fyrir næsta blogg. Það verður allavega eitt áður en ég fer heim í flugvélina. Ég þarf að fara að læra því ég er búin að gera svo lítið af því uppá síðkastið......eða þannig.

Er svo ótrúlega spennt að koma heim og hitta ykkur öll!

Mínar bestustu bestu kveðjur frá Danaveldi

                    Spobba

Are you shopping for labels or love?Sigurborg Ósk Haraldsdóttir


Ég verð bara að segja ykkur frá bíóferðinni sem ég fór í um helgina, eflaust sú eftirminnilegasta um ævina. Ég fór á Sex and the City með bekkjarsystur mínum hérna úti, á laugardaginn. Miðarnir voru pantaðir fyrir nokkrum vikum því eftirsóknin er gríðarleg eftir miðum. Að sjálfsögðu fór ég í nýjasta kjólnum mínum og stífmáluð, annað kom ekki til greina!
Í salnum var ekki einn einasti karlmaður, sem kom ekki mikið á óvart. Svo voru ljósin slökkt og Sex and the City-þemalagið byrjaði. Þá trylltist salurinn gjörsamlega,það var skrækt og klappað eins og Elvis Presley væri stiginn á sviðið. Ég hafði ekki hugmynd um að þetta yrði ósjálfráð viðbrögð hjá þeim sem voru í bíó, svo ég hreinlega hrökk í kút þegar lætin byrjuðu!
Sex and the City

Það er skemmst frá því að segja að myndin stóðst fyllilega allar væntingar og miklu meira en það. Ég hefði betur sleppt því að mála mig því ég held að ég hafi farið að grenja minnsta kosti 6 sinnum í myndinni. Málningin komin útum allt þegar ég gekk út úr bíóinu en með þvílíkt sælubros á vör. Það klappað og skrækt örugglega svona 10 sinnum í myndinni, stemningin var ótrúleg! Það er samt eitt sem stendur hreinlegu uppúr allri myndinni og það er tiltekið sturtuatriði, í slow motion......uss, annað eins hefur ekki sést á hvíta tjaldinu fyrr, og bara ALLT sýnt!!!

Mig langar að segja miklu meira um myndina en ætla ekki að gera það svo ég skemmi ekki fyrir þeim sem ætla að sjá hana. Já, líka þið strákar. Þið hefðuð bæði gaman af því og gott af því.

Lenti samt í skemmtilegu atviki á leiðinni í bíóið. Þá hjólaði hópur af nöktum Dönum framhjá okkur vinkonunum, í lögreglufylgd og alles. Eflaust svona 50 manns, allir kviknaktir og sumir með gærubúta á sér hér og þar. Bekkjarsystur mínar kipptu sér ekki mikið upp við þetta, fannst alveg sjálfsagt að sjá kviknakta samlanda sína. Alveg ótrúlega frjálslyndir þessir Danir.

En núna verð ég að halda áfram að læra, lokaskil framundan. Ég ætla bara að minna ykkur á að það eru 9 dagar þangað til ég kem heim og að ég verð í Skrýplandi helgina 20-22 júní að taka á móti knúsum og kossum!

Sól, sól skín á mig...Sigurborg Ósk Haraldsdóttir

...ský, ský burt með þig!
Gott fyrir sólina að verma sig.
Sól, sól skín á mig.

Hver man ekki eftir þessu lagi? Söng þetta lag mörgum sinnum á dag þegar ég var lítil. Sérstaklega þegar var verið að "hlaupa undir bunu" eins og það kallast. Þá var sólin bráðnauðsynleg til þess að halda á manni hita og þurrka alla bleytuna. Hérna útí Danmörku væri tilvalið að hlaupa undir bunu, sól og 20 stiga hiti alla daga. Ég get reyndar ekki mikið notið góða veðursins. Er í skólanum allan daginn til 10 á hverju kvöldi að læra. Ætla mér að fá góða einkunn núna, helst 10 á dönskum skala (en danskur einkunnaskali nær frá -2 og uppí 12).

Síðan hitti ég kannski Róbert bróðir eitthvað um helgina, hann verður víst hérna í Köben í góða veðrinu. Ekki má gleyma hápunkti helgarinnar sem er Sex and the City á laugardagskvöldið klukkan 18:30 með vinkonum mínum hérna í Danmörku. Það verður farið í sparifötin í bíó!

Ég var að fá fréttir af því að póstkortin sem ég sendi til yngstu meðlimana í fjölskyldunni komust til skila. Þau voru víst alveg í skýjunum og Alexíus litli sleppti ekki kortinu sínu í meira en klukkutíma og sýndi öllum sem vildu sjá, agalega montinn. Svo var á kortinu hans lítill límmiði af krókódíl sem sló víst líka í gegn. Gaman hvað litlir hlutir geta glatt mikið og ég mun knúsa þau í döðlur og rúsínur þegar ég kem heim.

Það eru jú bara 2 vikur í það...
     Sólskinskveðjur frá Kaupmannahöfn!

Bjössi bangsi hefđi átt ađ fá ađ lifa!Sigurborg Ósk Haraldsdóttir

Helvítis heilalausu ribbaldar sem búa í þessu landi!

Hvernig stendur á því að fella þurfti hvítabjörninn? Afhverju gat þessi fallega alfriðaða skepna sem er í útrýmingarhættu ekki fengið að lifa? Þeir segja að ekki hafi verið til deyfilyf á landinu til þess að deyfa dýrið. Á hvaða öld lifum við eiginlega? Umhverfisstofnun, ríkisstjórn og lögreglan vita mæta vel að ísbirnir geta gengið á land. Afhverju er ekki til neitt plan, áætlun eða reglur um hvað eigi að gera? Mér finnst þetta sorglegt, mér finnst þetta hrikalega sorglegtGráta.
Hvítabjörnandlit

Gat dýrið ekki fengið að búa annarsstaðar á landinu, á afmörkuðu svæði, flutt í húsdýragarðinn eða bara aftur til síns heima. Við erum frumstæðar manneskjur sem bera enga virðingu fyrir nátturunni og hvernig hún virkar. Mér finnst þessi hvítabjörn hetja, hann lifði af aleinn af ferðina til Íslands, einn á ísjaka. Ísbirnir drepa aldrei sér til  ánægju, ólíkt okkur. Þeir drepa til að afla sér matar og við með alla okkar tækni og peninga hljótum að geta farið betur með dýrið en þetta. Ég bara trúi ekki öðru.

Kveðjur frá reiðri og sorgmæddri stelpu sem á að vera einbeita sér að því að læra.

NÝTT NÝTT NÝTTSigurborg Ósk Haraldsdóttir

Það er komið nýtt útlit á vinsælustu bloggsíðu 23 ára Íslendings sem er úti  í Danmörku að læra landslagsarkitekt. Þess má til gaman að geta það eru margar bloggsíður í þessum flokki sem keppa um titilinn vinsælasta bloggsíðan.

Það er kominn tími á breytingar. Ég ætla heim, er byrjuð að pakka og allt að breytast. Er að svo að fara að vinna hjá Atlantsolíu í sumar og verð upptekin við að dást að mínu fallega föðurlandi. Ég verð reyndar að segja ykkur gleðifréttir, ég er búin að eignast nöfnu. Í Víðidalstungu fæddist fallegt lítið flekkótt lamb sem var nefnt í höfuðið á mér. Hún er með svona hvít hjarta á nebbanum sínum og ég er gríðarlega stolt og upp með mér með þessum heiðri sem mér var sýndur. Takk Sigga mín!

Ég sá skemmtilega auglýsingu á rúv.is áðan. Rafskutlur fyrir eldra fólkið. Vitið þið hvað rafskutla er? Það er svona faratæki sem flytur feita og farlama fólkið út um alla borg. Það heitir semsagt rafskutla á íslensku og ég er alvarlega að spá í að fá mér svona á Hvanneyri næsta vetur. Þarf bara að velja einhvern flottan lit.

Svo er komin ný könnun í gang. Niðurstöður síðustu könnunar "Hver keyrir strætóin?" fóru á þann veg að maðurinn með túrbaninn og Óli Njáls í Nátthaga voru hnífjafnir en rétt svar er þó maðurinn með túrbaninn, allavega hérna í Danmörku. Óli myndi eflaust keyra með strætóinn fullann af blómum og nakinn undir stýri.

Sáuð þið fréttirnar um strákinn sem var myrtur hérna í gær? Það geriðist í Amager bio sem er sko rétt hjá þar sem ég og Bjössi áttum heima. Bara tvær götur. Labbaði milljón sinnum þarna framhjá og var eitt sinn að spá í að fara á tónleika þarna. Þetta er brjáluð borg hún Kaupmannahöfn, morð á ungu fólki og byssubardagar. Ég þakka fyrir að vera vel vernduð hérna úti! Óhugnaðurinn gerist allsstaðar í kringum mann.
En meira var það nú ekki í bili.

Hugs and kisses frá orkuboltanum úti í Danmörku.

Ađalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Dr.Phils Tip of the day

Ţađ er enginn sem hafnar ţér nema ţú hafnir ţér sjálfur.

ER ÉG KEM HEIM Í SKRÝPLALAND

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Hver er ţessi gáfađa kona?

  • Nafn: Sigurborg Ósk Haraldsdóttir
  • Netfang: sigurborg_osk@hotmail.com
  • Atvinna: Í skiptinámi viđ Köbenhavns Universitet
  • Hjúskaparstađa: Einhlaupari
  • Um mig: I´m schizophrenic and so am I
  • Annađ: Mess with her you mess with me!

NETIĐ ER GAGNVIRKUR MIĐILL

Svo endilega tjáđu ţig á síđunni minni!

Könnun

Hvar á Sigurborg ađ vinna í sumar?